Gera svæðið fyrir framan Háskóla Íslands að útivistarsvæði

Gera svæðið fyrir framan Háskóla Íslands að útivistarsvæði

Hvað viltu láta gera? Gera svæðið fyrir framan aðalbyggingu Háskóla Íslands að trjálundi með fullt af stöðum til að hanga í skjóli og sól og njóta lífsins. Allir sem vúa og vinna á svæðinu myndu streyma þangað til að hreinsa hugann og slappa af. Listigarðurinn á Akureyri er góð fyrirmynd af svona garði Hvers vegna viltu láta gera það? Það eru engin not fyrir grasið þarna eins og er og myndi þetta veita fólki mikla hamingju í lífinu.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information