Parkour völlur

Parkour völlur

Hvað viltu láta gera? Ætlunin er að gera varanlegan parkour völl sem myndi bæði nýtast til íþróttaiðkunnar og sem hreystistöð ásamt því að glæða hverfið auknu mannlífi Hvers vegna viltu láta gera það? Parkour er ört stækkandi íþrótt sem gengur út á að komast yfir hindranir án nokkurs aukabúnaðar. Helsta markmið íþróttarinnar er að öðlast fullkomna hreyfifærni og yfirstíga áskoranir, bæði líkamlegar og andlegar, í gegnum endurtekningu og fullkomnun. Íþróttin og félagskapurinn í kringum hana hefur lengi verið athvarf fyrir krakka sem finna sig ekki í öðrum íþróttum vegna þess hve opin íþróttin er og án áherslu á keppni. Hingað til hafa helstu æfingasvæði iðkenda verið veggir og handrið borgarinnar en í sumar var settur upp tímabundinn parkour völlur í Laugardalnum sem vakti mikla lukku bæði fyrir iðkendur og almenning. Í mörgum löndum þar sem íþróttin er orðinn fjölmenn hafa verið settir upp parkour-vellir og parkour-salir, svæði sem tileinkuð eru iðkunn íþróttarinnar. Þessi svæði hafa aukið mikið við mannlíf og styrkt íþróttina í þeim löndum. Markmiðið með að setja upp varanlegan parkour völl er að bjóða upp á frumlegan hreyfikost fyrir börn og fullorðina ásamt því að gera íþróttina sýnilegri. Þó að völlurinn yrði kjörinn aðstaða til að æfa parkour mætti líka nota hann til annarar hreyfingar eins og þrekæfinga.

Points

Parkour er feykilega vinsæl íþrótt sem er sjálfsagt að fái varanlega útiaðstöðu í Laugardalnum. Að auki myndi parkour völlur þjóna hlutverki n.k. leikvallar fyrir eldri börn - en á slíku er skortur í hverfinu okkar.

Þessi íþrótt hefur verið stunduð af miklum krafti á Íslandi síðan um 2006. Það eru komnir hjólabrettavellir, þreksvæði og meira að segja skólahreystivellir sem sjást víða. Nú er kominn tími til að leyfa þessari flottu jaðaríþrótt að skína með varanlegum æfingarstað. Við viljum Parkour Völl!

Frábær hugmynd sem gæti allveg átt samstöðu með grilskála ,Danspalli, og opnun laugalækjar

Stuðlar að aukinni útiveru og sjálfstæðum leik eldri barna sem ekki fara lengur “á róló”. Frábær skemmtun og hreyfing - ört vaxandi íþrótt.

Mjög mikilvægt, við hjá Ármanni erum með 130 iðkendur í parkour, aðstaðan inni er fimleikasalur en úti þök og handrið!! Völlurinn sem fór upp í sumar var mikið notaður, bæði af parkour krökkum sem og öðrum. Svo er svo frábært að geta stundað þessa íþrótt úti.

Parkour er íþrótt sem þjálfar líkamlega, andlega og félagslega færni, og er mikilvæg fyrir krakka sem finna sig betur í íþrótt þar sem ekki er áhersla á keppni. Hingað til hafa helstu æfingasvæði iðkenda verið veggir og handrið borgarinnar og því mjög mikilvægt að fá aðstöðu sem er sérstaklega gerð fyrir íþróttina. Enda var svæðið sem sett var upp í sumar, mikið notað ekki eingöngu af þeim krökkum sem stunda íþróttina. Svona svæði eflir því almenningsíþróttir.

Parkour völlurinn sem fór upp í Laugardalnum í sumar var rosa vinsæll. Allt svona sem fær fólk til að hreyfa sig, það vil ég sjá meira af 😇

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information