Lækka hámarkshraða á Háaleitisbraut í 30 km
Það þarf líka að lækka hámarkshraðann á Háaleitisbraut alla leið að Bústaðavegi í 30 km á klukkustund en nú er hann 50 km á klukkustund. Þarna eru börn að fara í skólann og eru alls ekki nógu örugg. Það þarf að gera eitthvað sem allra fyrst áður en eitthvað alvarlegt skeður.
Svo má lika bæta við hægrireglann á allri götuna svo íbúar sem koma úr hliðagötur eru i forgangi.
Ég er sammála þessu og vil í þokkabót að hámarkshraðinn sé 30 km/klst allt að Bústaðavegi. Fyrir okkur sem búum í gerðunum sker Háaleitisbrautin hverfið óþægilega mikið og fjarlægir okkur frá verslun í Austurveri. Ég fagna því að fækka eigi akreinum og vil endilega hafa hámarkshraðan 30 frekar en 50! 👍
Ég er sammála og myndi helst vilja að Háaleitisbraut yrði botnlangi (eða bara fyrir strætó) þarna sem hún breytist í 30 km/klst götu sem er mögulega ekki raunsætt. Þarna eru börn að fara í og úr skóla og einnig óþreyjufullir bílstjórar sem reyna að stytta sér leið í gegnum Háaleitisbraut. Það þarf að hægja vel á bílstjórum á þessum stað.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation