Velkomin í Breiðholt - skilti

Velkomin í Breiðholt - skilti

Sett verði upp skilti við helstu leiðir inn í hverfið sem á stendur „Velkomin í Breiðholt“. Nýlegt merki Breiðholts verði notað á þessu skilti. Einnig verði merkið sett upp utan á vel valdar stofnanir í hverfinu. Hugsanlega má vinna skiltagerðina með FabLab í hverfinu. Breiðholtið er að vissu leyti svolítið eins og sjálfstætt bæjarfélag og vel þess virði að bjóða fólk velkomið í hverfið á notalegan og gamaldags máta.

Points

Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/7469

spurning hvar skiltið á að vera nema komið sé með fleiri en eitt... en skilti sem hvetur opna arma, opin hug og bjóða fólki velkomið er jákvætt og gott... hvort sem það er að bjóða fólki velkomið í hverfið sitt, heima hús eða annað... góð jákvæð hugmynd!

Falleg og vinaleg hugmynd :-)

almennt er aðkomufolk eða menn eða dýr ekki velkomin á svæði heimamanna eða dýra víða um heim, litið á þá sem óæskilega samkeppni um heimagæðin, mat eða kvendýr td. og ekki hlýlegar móttökur. og ef þetta er enn í mannsins eðli sem það hlýtur að vera þá væri svona skilti öfugmæli. sjálfur hef ég nú samt ekkert á móti velhegðandi aðkomandi en á því eru reyndar undantekningar of margar. ætti þa´að standa á skiltinu , velkomin í breiðholt ef þið getið hagð ykkur eins og almennilegt fólk..ne sleppa.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information